2021-02-010
Blue hour in Vogar │ Iceland city Photography
Documenting Iceland
by: Rafn Sig,-
English below:
Sveitarfélagið Vogar, áður Vatnsleysustrandahreppur er sveitarfélag á norðanverðu Reykjanesskaga. Flestir íbúar sækja vinnu annars staðar, til dæmis til Reykjavíkur eða Keflavíkur, en áður byggðist atvinnulífið aðallega á sjómennsku. Í sveitarfélaginu er byggðin Vogar, þar sem eru c.a. 1.300 manns. Flóinn sem þorpið stendur við heitir Vogavík en þorpið hét áður Kvíguvogar og Vogastapi, sunnan við þorpið hét Kvíguvogabjörg. Í Stakksfirði við Vogastapa voru góð fiskimið sem kallast Gullkistan. Vogar eru 14 km frá Reykjanesbæ og 25 km frá Hafnarfirði. Flestir íbúar búa í miðbænum Vogum en um 150 manns í dreifbýli.
Sveitarfélagið Vogar er næst landstærsta sveitarfélagið á Suðurnesjum og nær yfir Vatnsleysuströnd og bæinn Voga auk þess sem það teygir sig yfir í fjallgarðinn að Keili og Grænudyngju. Sunnan við Voga er Vogastapi og norðan við er Vatnsleysuströnd. Vogar eru um 25 km frá Hafnarfirði og um 14 km eru í Reykjanesbæ.
Sveitarfélagið Vogar tengir byggðirnar á höfuðborgarsvæðinu við byggðirnar á Reykjanesinu. Strandlengjan í sveitarfélaginu er um 30 km löng. Vatnsleysustrandarvegurinn, um 12 km langur, er lagður bundnu slitlagi og tilvalinn fyrir þá sem velja vilja minni og hægari umferð en ef ekið er eftir Reykjanesbraut.
– 0 –
Vogar municipality formerly Vatnsleysustrandahreppur is a municipality in the north of Reykjanes peninsula. Most residents apply thee work elsewhere, for example to Reykjavík or Keflavík, but before that, the business world was mostly based on seafaring. In the municipality is the settlement Vogar, where there are c.a. 1,300 people. The bay the village stands in is called Vogavík but the village was formerly called Kvíguvogar and Vogastapi, south of the village was called . . . All info at: https://www.patreon.com/RafnSig
Subscribe to my Youtube Channel
You can buy this and other photos at my Icelandic Stock Photo Web: IcelandStockPhotos.com
0 Comments