2022-06-10

Flateyjardalur │ Iceland Photo Gallery

Documenting Iceland

by: Rafn Sig,-

Flateyjardalur er dalur og strönd sem liggur norð-austantil á skaganum milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa og nær frá Landsenda í vestri til Hágangna í austri. Suður úr Flateyjardal liggur heiðardalurinn Flateyjardalsheiði til móta Fnjóskárdals og Dalsmynnis.

Dalurinn tilheyrir nú Þingeyjarsveit en áður Hálshreppi frá 1972 og einnig fyrr á öldum, en frá 1907-1972 voru Flateyjardalur og Flatey sérstakt sveitarfélag, Flateyjarhreppur.

Fallegt þykir á Flateyjardal á sumrin en þar er mikið vetrarríki og snjóþyngsli og samgöngur oft torveldar af þeim sökum. Um dalinn liggur nú jeppafær slóði yfir Flateyjardalsheiði, sem einungis er þó fær að sumri. Vegna erfiðra samgangna fór dalurinn í eyði um miðja 20. öld en þar mátti finna allnokkur býli. Síðasti bærinn sem fór í eyði var Brettingsstaðir neðri árið 1953. Íbúðarhúsið á bænum stendur enn og er notað ásamt tveimur öðrum reisulegum húsum á dalnum, á Brettingsstöðum efri og Jökulsá, sem sumarhús.

Sóknarkirkja Flateyjardals og Flateyjar, sem liggur á Skjálfandaflóa skammt undan landi, hafði verið í Flatey frá fornu fari en í jarðskjálfta árið 1872 laskaðist hún og þarfnaðist endurbyggingar. Þar sem kirkjugarðurinn í Flatey var útgrafinn og þörf á að flytja kirkjuna til var ákveðið að flytja hana í land og að Brettingsstöðum, en á þessum tíma voru álíka margir íbúar í eynni og á Flateyjardal. Það tók þó sinn tíma og var kirkjan á Brettingsstöðum ekki vígð fyrr en 1897. Smám saman fækkaði þó fólki í landi en eyjarskeggjum fjölgaði og eftir að dalurinn var allur farinn í eyði var kirkjan flutt aftur út í eyna. Þar var hún endurvígð 17. júlí 1960 en nokkrum árum síðar fór Flatey einnig í eyði.

Saga Flateyjardals er samofin sögu Finnboga ramma sem fæddist þar, á bænum Knarrareyri, en hann var garpur mikill, þótt gæfa hans væri misjöfn. Landnámsmaður í dalnum er sagður hafa verið Eyvindur Loðinsson, faðir Ásbjarnar dettiáss, föður Finnboga

Flateyjardalur is a deserted coast by Skjálfandi bay on the Flateyjarskagi peninsula in northern Iceland. South from the coast is a valley, Flateyjardalsheiði, that stretches south to Fnjóskadalur valley. Flateyjardalur is named after the island of Flatey, which lies just off the shore. Finnboga saga ramma, one of the Icelandic sagas, takes place in the area.

According to the Finnboga Saga 15 of Finnbogi’s enemies ambushed him where the present road descends a narrow ridge. He was travelling there alone and managed to kill 12 of them before help came and drove the remaining three away. In earlier times, the valley contained five farms, which have all been abandoned. The family, who struggled the longest, did not leave the farm Brettingsstadir until 1954.

At Brettingsstadir stood a church for a period. The valley bottom is flat and fertile and extremely colourful and beautiful during summer. The winters are extreme and severe. The hardships and lack of communications drove the people, who lived there away.

. . . All info at: https://www.patreon.com/RafnSig

 

Subscribe to my Youtube Channel 

 

You can buy this and other photos at my Icelandic Stock Photo Web: IcelandStockPhotos.com

 

Liked it?

Take a second to support me on Patreon

 

Viltu styrkja þessa síðu?

Vefsíðan Iceland Photo Gallery er unnin í sjálfboðavinnu. Ef þú hefur áhuga á að styrkja þetta framtak til áframhaldandi uppbyggingar er hægt að leggja inn á:

Reikningsnr.: 0101-26-013169
Kennitala: 310155-4469

0 Comments

Show Buttons
Hide Buttons