2022-05-06

Hornafjarðarfljót │ Iceland Photo Gallery

Documenting Iceland

by: Rafn Sig,-

         Hornafjarðarfljót koma úr jökli þeim er kallaður er Heiðnabergsjökull. Falla þau niður miðjan Hornafjörð og eyddu þau þar bæi marga er þau hlupu fram.

Segir sagan að þar hafi áður verið fögur sveit og þéttbýl.

Jökullinn hljóp um nótt og var fólk allt í svefni. Fórust þar allir og engu varð bjargað, hvorki mönnum né skepnum. Sópuðu fljótin gjörsamlega öllu, bæjum og húsum og því er í var, og fylgdi þar grassvörðurinn með. Þurrkaðist þannig sveitin öll í burtu og þótti það mikil sjón og ógurleg um morguninn er menn sáu vegsummerki.

Þrem árum síðar var smali á ferð niður við ósinn á fljótinu. Hundur var með honum og nam staðar við þúfu eina á sandinum. Smalinn ætlaði að halda áfram, en rakkinn flaðraði upp um hann og hljóp ýmist að þúfunni og rótaði í henni snuddandi eða að smalamanni.  Smalamaður gekk þá að þúfunni og vildi vita hvað um væri. Heyrði hann þá gelt niðri í henni. Reif hann þá til og fann þar stúlku eina og hund hjá henni. Hún hafði þar verið síðan hlaupið varð og hafði húsið sem hún var í haldið sér og sandorpið. Hafði hún fundið þar í vistir margar og því hafði hún getað lifað.

Smalamaður fór nú heim með fund sinn, og þótti þetta merkilegur atburður og þykir svo enn í dag.

Hornafjarðarfljót, a big glacial river flowing mostly from Heiðnabergsjökull and emptying into Hornafjörður. Very wide but shallow, dividing into two main rivers: Austurfljót and Suðurfljót (“East and south rivers”). The bridge (225 m) built in 1961 was the second longest in the country until 1973.

. . . All info at: https://www.patreon.com/RafnSig

 

Subscribe to my Youtube Channel 

 

You can buy this and other photos at my Icelandic Stock Photo Web: IcelandStockPhotos.com

 







Liked it?

Take a second to support me on Patreon

 

Viltu styrkja þessa síðu?

Vefsíðan Iceland Photo Gallery er unnin í sjálfboðavinnu. Ef þú hefur áhuga á að styrkja þetta framtak til áframhaldandi uppbyggingar er hægt að leggja inn á:

Reikningsnr.: 0101-26-013169
Kennitala: 310155-4469

1 Comment

  1. Unreal, but you got it

Show Buttons
Hide Buttons