2024-10-31
Behind Kerlingarfjöll Mountains │ Iceland Photo Gallery
Documenting Iceland
by: Rafn Sig,-
Kerlingarfjöll eru stórbrotinn og svipfagur fjallaklasi, um 150 km², suðvestan undir Hofsjökli. Draga þau nafn af drang einum miklum og dökkum, úr móbergi, um 25 m háum, sem Kerling heitir og stendur upp úr ljósri líparítskriðu sunnan í Tindi (Kerlingartindi) í vestanverðum fjöllunum.
Tindar Kerlingarfjalla eru um 800-1500 m y.s. og rísa furðubrattir upp af 600-700 m hásléttu. Fjöllin eru mjög mótuð af sprungum og meginstefna þeirra er frá norðaustri til suðvesturs en í þeim norðanverðum er þó þver sprungustefna, frá suðaustri til norðvesturs. Kalla má að Kerlingarfjöllum sé deilt í tvennt af Hveradölum sem ganga inn í fjöllin frá vestri. Norðaustan við Hveradali heita Austurfjöll. Þau eru hæsti og hrikalegasti hluti Kerlingarfjalla og þar eru hæstu tindar þeirra, Snækollur (1482 m y.s.) og Loðmundur (1429 m y.s.).
Kerlingarfjöll eru að langmestu leyti úr líparíti, ljósbrúnu að lit, en randfjöll þeirra úr móbergi. Víða er hrafntinna. Talið er að þau hafi orðið til á síðari hluta ísaldar.
Jarðhiti er geysimikill í Kerlingarfjöllum, mestur í Hveradölum en einnig er jarðhiti í austanverðum Botnafjöllum og í Hverabotni suðaustan undir Mæni. Jöklar eru allmargir í skörðum og slökkum í um 1150-1300 m hæð en skriðjöklar ganga niður undir 800 m hæð. Fara jöklar þessir minnkandi sem annars staðar. Alls eru jöklarnir um 8 km².
Samfelldur gróður er sáralítill í Kerlingarfjöllum nema smáblettir í Innra- og Fremra-Árskarði og Kisubotnum. Meira að segja eru jarðhitasvæðin gróðurlaus að heita má en þó er lítils háttar gróður, sefbrúða og dúnurtir, í dýjavolgrum.
Kerlingarfjöll (1,477 m (4,846 ft)) is a mountain range in Iceland situated in the Highlands of Iceland near the Kjölur highland road. The volcanic origin of these mountains is evidenced by the numerous hot springs and rivulets in the area. And indeed, they are part of a large volcano system of 100km² (38.6 square mile). The volcanoes of the range are tuyas.
The earth is shimmering red in this area because of the volcanic rhyolite stone the mountains are composed of. Minerals that have emerged from the hot springs also color the ground yellow, red and green.
The name Kerlingarfjöll, which translates to “Old Lady Mountain,” comes from a folk tale. It is about an old, ugly female troll who wandered around the area until the daylight caught her and turned her into stone. More precisely, it is a 25-meter (82 feet) tuff tower which remains to decorate the valley today.
The first scientists visited the mountains in 1890. Later on, in the next century, the nearby Kjölur Road was constructed, connecting the north and the south of the country. This made it possible for the first vehicle to enter Ásgarður Valley in 1936, which is the site where the Kerlingarfjöll resort is located today.
In old times, Kerlingarfjöll was considered a rather unfriendly place. People thought that the region was full of trolls or outlaws. Due to both this and the harsh road conditions, Kerlingarfjöll was not explored for centuries. . . . All info at: https://www.patreon.com/RafnSig
Welcome to my Spotify page - Cinematic Instrumental Music
Playlist No 1 - Cinematic Instrumental Music
Playlist No 2 - Cinematic Music for Videos & Films
Playlist No 3 - Cinematic Emotional Background Music
Playlist No 4 - Uss... Uss... Barnaplata / Children record
– 0 –
Viltu styrkja þessa síðu?
Vefsíðan Iceland Photo Gallery er unnin í sjálfboðavinnu. Ef þú hefur áhuga á að styrkja þetta framtak til áframhaldandi uppbyggingar er hægt að leggja inn á:
Reikningsnr.: 0101-26-013169
Kennitala: 310155-4469