2021-09-06
Morsárjökull │ Iceland Photo Gallery
Documenting Iceland
by: Rafn Sig,-
Niður úr sunnanverðum Vatnajökli, milli Skaftafellsjökuls í austri og Skeiðarárjökuls í vestri, gengur lítill skriðjökull sem nefnist Morsárjökull. Jökullinn gengur niður á aura Morsár sem fellur frá jöklinum um samnefndan dal, Morsárdal, sem umgirtur er allt að 1000–1400 m háum og bröttum fjöllum. Að austanverðu er Skaftafellsheiði í um rúmlega 1100 m hæð við Kristínartinda en rís hæst upp í 1385 m við Skarðatind og 1343 m hæð við Þorsteinshöfða. Að vestanverðu rísa Skaftafellsfjöll í um og yfir 1000 m hæð og hæst skagar Austurhnúta í Miðfelli, upp í um 1084 m. Um flatan dalbotninn flæmist Morsá um á eyrum, sem þaktar eru litríkum rhýólíthnullungum og -steinum, frá því að hún fellur úr litlu jökullóni innan við ystu jökulgarða Morsárjökuls og þar til hún rennur í farveg Skeiðarár úti á Skeiðarársandi. Morsárdal tengja margir við fallegt og hrikalegt landslag í þjóðgarðinum í Skaftafelli. Þá er svæðið þekkt fyrir mikla gróðursæld, sérstaklega gróðurvinina í Bæjarstaðarskógi.
Sjálfur Morsárjökull er um 4 km langur og 750–900 m breiður neðan ísfossanna, eða um 3,3 km2 að flatarmáli. Jökullinn er svonefndur falljökull og sjá tveir ísfossar/ísstraumar um að fæða hann.
Að vestanverðu er jökullinn enn tengdur við meginjökulinn með um 200 m breiðum ísstraumi, en stór hluti hans fellur fram í miklum ís- og snjóflóðum. Að austanverðu er jökullinn algerlega skilinn frá meginjöklinum og fellur jökulísinn niður allt að 350 m hátt þverhnípt hamrabelti líkt og sá vestari Milli ístungnanna gengur urðarrani niður jökulinn frá höfða sem skilur að ísfossana.
Þessi höfði er nafnlaus í dag en stungið hefur verið upp á að hann verði nefndur eftir vísindamanninum Jack D. Ives, sem í áraraðir hefur unnið að jöklarannsóknum á Skaftafellssvæðinu.
Yfirborð jökulsins er sprungið líkt og á öðrum skriðjöklum, en svigður (e. ogives), sem ganga niður hvorar frá sínum ísfossinum, eru áberandi í jökulyfirborðinu. Fyrir framan jökulsporðinn liggja víðáttumiklir jökuláraurar. Neðar í dalnum slær ljósleitum blæ á aurana en ástæða þess er að aurarnir innihalda rhýólítmöl sem rofist hefur úr gosmyndunum í Kjósinni, gamalli megineldstöð í fjöllunum rétt vestan við jökulinn. Jökulgarður gengur þvert yfir Morsárdal, um 1,6–1,8 km frá núverandi jökuljaðri. Í bröttum hlíðum dalsins fyrir ofan núverandi jökul sjást greinileg ummerki nýlegs jökulrofs, en þau sýna glöggt hversu mjög jökullinn hefur hörfað og þynnst á undanförnum árum og áratugum. Fyrir framan jökulinn að austanverðu er jökullón sem árið 2011 var um 1100 m langt og allt að 400 m breitt. Samfara hörfun jökulsins hefur lónið stækkað umtalsvert hin síðari ár.
Þann 20. mars árið 2007 féll bergflóð á ofanverðan Morsárjökul í Öræfum í Austur-Skaftafellssýslu. Bergflóðið er talið með stærri skriðuföllum sem orðið hafa hér á landi á umliðnum árum og áratugum. Talið er að það hafi fallið í tveimur hlutum; meginhlutinn féll 20. mars en viðbótarhrun varð þann 17. apríl 2007. Bergflóðið féll við efri brún jökulsins að austanverðu og urðin eftir hrunið hylur þar allt að 1/5 af yfirborði jökulsins, eða um 720.000 m2.
Miklar breytingar hafa orðið á bergflóðsurðinni og jöklinum eftir að bergflóðið féll. Grófkornótt bergflóðsurðin hefur sigið mikið saman og stórgrýti molnað niður. Jökulísinn undir bergflóðsurðinni er einangraður frá lofthita og geislun og bráðnar því mun hægar en ísinn umhverfis. Þess vegna hefur orðið eftir þykkur ísbunki undir urðinni og er þar sístækkandi bunga að myndast á jöklinum.
Talið er að jökulrof og hröð hörfun Morsárjökuls á undanförnum árum og áratugum, ásamt veikum jarðlögum í berggrunni, sé meginorsök bergflóðsins.
Morsárjökull is an outlet glacier that sits at an elevation of 457 metres; it is approximately 3.5 kilometres long and 1.5 kilometres wide. It consists of two ice streams, one of which is connected to Vatnajökull glacier, the largest ice cap in the country, and the other of which is separated.
It is surrounded by 1000 – 1400 m high mountains.
The ice-front has retreated considerably and the debris lobe of the rock avalanche has moved downward along with the . . All info can be found at: https://www.patreon.com/RafnSig
Subscribe to my Youtube Channel
You can buy this and other photos at my Icelandic Stock Photo Web: IcelandStockPhotos.com
0 Comments