2021-11-13

Rauðibotn crater │ Iceland Photo Gallery

Documenting Iceland

by: Rafn Sig,-

Rauðibotn eru meðal fegurstu náttúruminja landsins.  Úr lofti líkist Rauðibotn rauðri risaskál með mosagrænu teppi og snoturri tjörn. Við fyrstu sýn virðist Rauðibotn stakur gígur en í raun er hann hluti af Eldgjá, gossprungu sem teygir sig frá Mýrdalsjökli og langleiðina að Vatnajökli. Gosið er talið hafa orðið í kringum 934 og er það stærsta sem orðið hefur á Íslandi á sögulegum tíma, mun stærra en Skaftáreldar.

Gosið hafði líklega áhrif á veðurfar um gjörvalt norðurhvel jarðar.  Ummerki um gosið eru mjög áberandi um allt svæðið norðaustan Mýrdalsjökuls, m.a. gríðarlegar eldsprungur, gjóskulög í jarðvegi og sandur.  Gossprungan sjálf er einstök náttúrusmíð, sem án nokkurs vafa teljast meðal merkilegustu náttúrufyrirbrigða landsins, vegna þess hve sérstæð hún er, fegurðar, en ekki síður vegna gildis þessa gríðarlega mikla eldgoss í jarðsögu landsins. 

Eldgjá (öll gossprungan) ætti án nokkurs vafa að njóta ýtrustu verndar.  Eldgjá er mun lengri en sá hluti sem flestir líta augum frá Fjallabaksleið nyrðri inn að Gjátindi.  Sá hluti sem liggur suðvestur frá Fjallabaksleið er ekki síður fallegur, en þar koma fáir.  Og svo er það Rauðibotn við Fjallabaksleið syðri.  Þar rennur Hólmsá frá Torfajökulssvæðinu í gegnum gosmyndanirnar frá Eldgjárgosinu í fallegum fossum og flúðum og umhverfið er hreint út sagt einstakt.  Gossprungan stíflaði Hólmsá svo að myndarlegt vatn myndaðist þar að baki: Hólmsárlón. 

Vatnið í lóninu hefur sérkennilegan blágráan lit sem er heillandi andstæða við rauðleitt gjallið og mosavaxin fjöllin í kring. Gaman er að ganga meðfram lóninu að suðurenda þess. Þar taka við tugir fossa í Hólmsá sem brýtur sér leið í gegnum mosavaxið hraun.

One of the amazing destinations in the Highlands of Iceland is Rauðibotn crater: A red and green emerald surrounded by the volcanic deserts and wastelands between Torfajökull and Mýrdalsjökull glaciers. A hike to Rauðibotn is made all the more spectacular by the river Hólmsá and its waterfalls, which form a spectacular string of pearls.

Rauðibotn is part of the Eldgjá craters, a chain of volcanic craters which stretches through the Central Highlands from Mýrdalsjökull glacier to Vatnajökull glacier. Eldgjá is connected to the monster volcano Katla, as both are part of the same volcanic system. Eldgjá has only erupted once since the VIking settlement of Iceland in the 9th century: In 934 a massive eruption, believed to be the largest volcanic eruption to take place in Iceland in the past millennia.

. . . All info at: https://www.patreon.com/RafnSig

Subscribe to my Youtube Channel

You can buy this and other photos at my Icelandic Stock Photo Web: IcelandStockPhotos.com

 







Liked it?

Take a second to support me on Patreon

 

As a native photographer I feel responsible to leave all I can behind to show how it looked like, with my photography, before it’s too late.

0 Comments

Show Buttons
Hide Buttons